Janúar 2001

7 Gjafir
Þriðja áratugarins

Ábendingar frá Steve:

Margir okkar vina og fjölskyldur í hollandi hafa byrjað að koma saman og sameinast í smærri staðarhópa til framkvæmda á persónulegri og á heilun jarðar. Þetta er það sem the Group skilgreinir sem hópa eða hringi ljóssins. The Group hefur sagt að með því að tengja hringi ljóssins, skiptast á hugmyndum, styrk, vonum og draumum, það muni auðvelda samskipti okkar hér á jörðinni. Nokkrir sérstakir einstaklingar í Hollandi byrjuðu að sameina og  virkja litla fókushópa á staðnum, sem þau kölluðu ljóshringi. Þau virkjuðust strax í tengingum og eru að virkja kraftinn að baki orðsins.

Það var stórkostlegt að sjá alla þessa ljóshringi sameinaða og eyða deginum saman. Skilaboðin sem komu sem ljósboð, voru flutt á staðnum og voru tileinkuð þessu sérstaka tilefni, fyrstu ljóshóparáðstefnunnar í Eindhoven, Holland sem haldin var í Oktober, 2000. Þar voru um 1000 manns samankomin. Barböru og mér  fannst það mikill heiður að vera hluti af þessari samkomu og þetta var einstakur dagur, fyrir okkur að koma saman og skiptast á hugmyndum, auka styrkinn og virkja tengingar hjartans.

Á nýjárskvöld 1999 færðist klukkan á miðnættið og almanakið okkar byrjaði að sýna árið 2000, eftirvæntingin byrjaði að koma upp á yfirborðið hjá okkur öllum. Í hvert skipti sem við komum saman og sameinum okkar  fókus í von og væntingum fyrir framtíðina, þá sköpum við framfarir fyrir heildina. The Group merkti árið 2000 sem “Ár Kristal ásetnings.” Þetta var árið til að kristalmynda okkar ásetning fyrir okkar einstaklingsstefnu næstu tólf árin. Næstu tólf árin þar á eftir myndu svo ákvarða  upphaf okkar stefnu næstu 1000 árin inn í þriðja árþúsundið. Þrátt fyrir mikinn rugling yfir túlkuninni, þá byrjar þriðja árþúsundið, raunverulega 1. Janúar árið 2001, sem rann í garð á fimmtugasta afmælisdeginum mínum. Við munum öll muna, nákvæmlega hvar við vorum og hvað við upplifðum, þegar klukkan sló 12:01 árið 2000. Frá andlegu sjónarhorni, mun innsláttur tímans fyrir 2001 vera skráður í annála ókominna tíma . Eins og Rod Serling var vanur að segja þegar hann stýrði sjónvarpsþáttum sínum á 60. áratugnum Twilight Zone: “Þið eruð um það bil að stíga inn í aðra vídd….”

 

From the Group:

Kveðjur að heiman:

Getið þið heyrt þessi orð, sem þau hljómi frá veggjunum? Þið horfist í augu og speglið ykkur sjálf. Eftir stutta stund munum við koma jafnvægi á orkusviðið í herberginuin  svo þið getið fundið ykkur heima. Nöfn ykkar hafa verið merkt þessum stólum í langann tíma og við höfum beðið þess lengi að þið kæmuð saman. Okkur er heiður í því að fá að vera í nærveru ykkar. Þar sem þið eruð meistarar á leikvelli hins frjálsa vals og við færum ykkur stórkostlegar fréttir í dag. Við höfum sagt ykkur hvað eftir annað að það er aðeins ein regla sem gildir á þessum leikvelli. En frjálst val á öllum sviðum og þó eruð þið eina plánetan sem velur þessa tjáningu hins óendanlega skapara. Þar sem þið kjósið að færa yfir ykkur þessar blæjur og leikið ykkur svo að baki, blæju gleimskunnar, þá hafið þið kosið ykkur besta valkostinn, Það er,Þið öðlist frægð án orða. Litirnir sem þið vinnið ykkur inn, fyrir þá vinnu sem þið framkvæmið hér á jörðinni, munu vera ykkar um alla eilífð, þar sem þið hafið unnið fyrir þeim.

Stigið inn í þriðja árþúsundið
Stundum kemur það fyrir að þegar þið skoðið ykkur sjálf, þá getið þið ekki munað hver þið eruð. Stundum skoðið þið í kring um ykkur og spyrjið, er þetta allt sem er? Og svo koma tímar, þar sem þið lendið í átökum, því það er erfitt fyrir ykkur að breytast, og ykkur finnst þið vera alein. Þið eruð ekki alein. Þið eruð aldrei alein og hafið aldrei verið. Hjartað ykkar þekkir leiðina heim og þar erum við til staðar, með útbreydda vængi fyrir ykkur. Við munum vera þar og viðhalda orkusviðinu, fyrir þá tíma sem þið munið ekki hver þið eruð. Þið eruð hin stórkostlegu og þess vegna er okkur heiður í að vera í nærveru ykkar. Við sitjum við fætur ykkar og virðum ykkur, því þið eruð meistararnir, sem hafið valið þann kostinn, að ganga að baki þeirrar hulu sem gleimskan geymir, án þess að muna hver þið eruð. Við viljum segja ykkur, að þið hafið nú þegar náð árangri. Þið eruð um það bil að stíga inn í þriðja árþúsundið. það eru raunverulegar töfrastundir. Því þegar þið komist yfir mörkin, munu nýjar reglur gilda. Nýjar fyrirmyndir munu koma fram í dagsljósið og nýjar uppákomur munu koma fram, nokkuð sem þið hafið beðið lengi eftir.

7 Gjafir þriðja áratugarins
Fljótlega munuð þið ganga inn í töfratíma sem nefndir eru þriðja árþúsundið. Þessir tímar eru mikilvægari en þið gerið ykkur grein fyrir, því það eru margir sérstakir atburðir sem eiga eftir að koma upp í beinu framhaldi af þessum tímamótum. Við ætlum að deila sumu af þessu, við ykkur núna.

1. Kristalbörnin eru væntanleg

Við skulum byrja á að tala um  börnin í kristaltíðninni, því þau eru að koma. Fram til þessa hefur það verið spurning um, hvort börn kristaltíðninnar myndu koma aftur til jarðarinnar, af frjálsum vilja. Þau hafa gert margar tilraunir og í hvert skipti sem þau hafa verið tilbúin, hafa útsendarar farið inn í jarðvistina til að kanna öryggið, þeir hafa ekki fengið hlýjar móttökur. Orkusvið jarðar var ekki nægilega hátt til að veita þeim styrk. Innan lægri orkusviða mannkyns, hefur þeim verið illa tekið og sum þeirra jafnvel verið krossfest. Ótti ykkar hefur ráðið gjörðum ykkar. Við getum sagt ykkur að viðhorfin ykkar hafa breyst. Það er nauðsynlegt fyrir ykkur að skilja að jafnvel þótt þið sameinist í smærri hópum  þá gerið þið gagn.

Þar til nú nýlega, var það spurning hvort börn kristaltíðninnar myndu raunverulega stíga inn í jarðvistina og nú getum við sagt ykkur að það er ekki spurning lengur um hvort, heldur hvenær.Ykkar ákvörðun hefur gert það mögulegt . Börn Indigotíðninnar eru á plánetunni á þessum tímum til að undirbúa jarðveginn, því þetta verkefni þarfnast mikils undirbúnings. Börn Indigotíðninnar eru þau börn, sem munu breyta viðhorfum ykkar gagnvart börnum. Þau munu fá ykkur til að endurskoða skólakerfið, þau munu fá ykkur til að leita nýrra leiða, til að skapa rými fyrir börn sem skara fram úr og hjálpa ykkur við að greiða úr hulunni. Börn kristaltíðninnar munu fara nýjar brautir í lífeðlisfræðinni. Þetta eru hinir töfrandi. Þetta eru þeir sem eru fram úr hófi öflugir, þó viðkvæmir. Styrkur þeirra kemur í gegnum þeirra viðkvæmni. Til þess að þau geti snúið aftur til jarðar, þarf plánetan að vera örugg. Með ykkar vali að hækka vitundarástand ykkar, eruð þið að skapa öruggt jarðarsvið. Þið hafið haft meiri áhrif og snert fleiri hjörtu en þið gerið ykkur ljóst. Þið ættuð að vera hreykinn af ykkur, því við erum það. Svo á þessum tímum þegar þið getið ekki séð þá sem þið snertið, þeim tímum sem þið munið ekki hver þið eruð, munum við breyða úr vængjum okkar til að endurspegla stórfengleika ykkar. Því þið eruð hin stórkostlegu, við virðum það hlutverk sem þið hafið tekið á ykkur. Þið eruð að skapa breytingar.

2. Að láta blysið ganga

Gangan inn í ljósið

Þriðja árþúsundið er gangan inn í ljósið. Þetta eru skrefin sem við þurfum að taka, til að opna dyrnar inn í fimmtu víddina til fulls í eitt skipti fyrir öll. Byrjunin er þegar komin í gang. Önnur sérstök uppákoma er, að láta blysið ganga. Því fram til þessa, hefur mannkyninu ekki tekist að  viðhalda orkusviði jarðar. Að hugsa um og yrkja plánetuna Jörð hefur verið illilega viðhaldið. Í gegnum orkusvið ykkar lægra ástands, það hefur ekki verið mögulegt fyrir mannkynið að viðhalda þessu orkuástandi með góðu móti. Þegar þið gangið inn í ljós æðra orkuástands, þá munu þessi viðhorf breytast og þið munið finna til meiri ábyrgðar, til að hugsa um og yrkja Móður Jörð. Þið hafið tekið þann valkost að leita æðri sannleika, sem hefur bókstaflega lyft ykkur upp. Mannverur sem voru í lægra orkuástandi fyrir fáum árum, eru nú þegar komnar inn í hærra orkuástand, sem gerir þeim kleyft að ganga í ljósi og virkja þann kraft sem er fæðingarrettur alls mannkyns. Við erum afar hreykin af þeim árangri sem þið hafið náð, því fyrir fáum árum, gaf ekkert til kynna um að ykkur myndi takast að komast þetta langt, með að skapa aðstæður og virkja það orkuástand sem þið eruð þegar komin í.

Takið nú kyndilinn af ábyrgð og haldið honum hátt og verið hreykin. Því krafturinn sem ykkur hefur áskotnast er sköpunarkrafturinn. Þeim krafti fylgir líka ábyrgðin að nota þennan kraft og virkja hann rétt. Sameinist um að vinna með Móður jörð og þið munið stíga stór skref, með að skapa himinn á jörð. Nú er rétti tíminn og þið eruð gæslumenn plánetunnar og orkuhjúps Móðurinnar. Takið kyndilinn og viðhaldið helgi hans.

Sjötta og síðasta tilraunin

Þið voruð búin að velja ykkur tímamörk á leikvellinum og ef þið hefðuð ekki munað hver þið voruð, myndi jörðin einfaldlega hafa snúist á hliðina og eytt öllu lífi eins og hún hefur gert fimm sinnum áður. Þetta hefði orðið í sjötta og síðasta skiptið. Þið byrjuðuð að vakna til meðvitundar og munduð hver þið voruð og tókuð valdið í ykkar hendur, þið eruð að skapa rými fyrir vakningu mannkyns í ykkar umhverfi. Getið þið ímyndað ykkur undrunina? Getið þið ímyndað ykkur dýrðina? Getið þið ímyndað ykkur fögnuðinn þegar þið fáið staðfestinguna á að þið eruð mann-englar? Því ef á að takast að skapa himinn á jörð, er nauðsynlegt að hafa engla. Þið eruð englar jarðarinnar og þið berið það vel. Þið berið það með reisn og gangið hreint til verks. Verið þið sjálf, því þið eruð mann-englarnir sem nú byggja jörðina og eruð að móta hana á þessum tímum.

Það er fylgst með ykkur

Við höfum oft sagt ykkur að þið eruð undir eftirliti margra augna sem þið eruð ekki meðvituð um. Þið skoðið ykkur um í svigrúminu ykkar og þið sjáið takmarkaðann fjölda augna sem fylgir ykkur eftir, en við getum sagt ykkur að það eru margar víddir yfirtóna, sem eru í umhverfinu. Ef þið haldið að Amsterdam hafi umferðavandamál, þá getum við sagt ykkur að umferðavandinn er raunverulegur hjá okkur. Allra augu í hinum svokallaða alheimi hafa beinst að plánetu hins frjálsa vals, því þið eruð að virkja hana. Þið eruð að skapa breytingar. Því með því að skapa farveginn fyrir börn kristaltíðninnar, svo  ný líffræði geti byrjað að taka á sig mynd, þá eruð þið að breyta alheiminum. Þau ykkar sem óska eftir endurnýjun á lífsmynd sinni og yngja hana upp, munu gera það. Þið eigið valið, því það er aðeins ein regla á leikvellinum, svo ef þið viljið, mun það vera svo, ef þið vijið ekki, við virðum ykkur.

3. Breytingahópar taka sér stöðu.

Það munu margir hætta í komandi framtíð. Margir taka þann valkostinn, að vera ekki með. Látið þá ekki hafa áhrif á ykkur, í Guanna bænum, dæmið þá ekki, fyrir litla andagift. Þeir hafa gengt mikilvægu hlutverki, sem hefur gert þetta verkefni mögulegt. Við getum sagt ykkur, að þeir eiga heiður skilið. Vegna ykkar ákvörðunar, er komin tími til að umbreytingarhópurinn fari að koma saman. Umbreytingarhópurinn er sérstakur hópur heilara sem vinnur við þessar umbreytingar. Það sem þið kallið dauða er aðeins umbreyting á orku frá einu ástandi, yfir í annað. Svipað og á sér stað í svefni, þið munið læra að skylja velbúnað endurholdgunar og hver þið raunverulega eruð. Svipað og þið mynduð sofna með erfiðleika sem myndu angra hugann, þá væri það víst að þið munuð vakna að morgni með þessa sömu erfiðleika í huganum og þyrftuð að takast á við það. Við erum að reyna að segja ykkur að það sem þið kallið dauða er svoð til það sama. Því ef þið farið yfir með erfiðleika í huganum, söknuð í hjarta eða ótta, þá komið þið til með að upplifa samskonar orkusvið þegar þið komið aftur. Ahh, en snúum okkur aftur að umbreytingarhópnum. Þetta eru heilunarmeistararnir sem koma inn með þann töframátt, sem getur stillt af orkusviðið ykkar. Stundum  fylgir töframáttur, með snertingu handa þeirra. Stundum vinna þeir í orkujöfnun á næturnar þegar þið sofið. Þeir eru hér til að koma jafnvægi á orkusviðið ykkar, til að umbreytingar geti auðveldlega átt sér stað. Stundum vinna þeir með þá sem hafa orðið fyrir áfalli, því það er oft erfitt fyrir þá að fynna ljós og komast aftur heim eða átta sig á því að umbreyting hefur átt sér stað. Þeir átta sig ekki á að þeir séu komnir yfir. Á öðrum tímum vinna þeir með fjölskyldum sem hafa misst ástvin og hjálpa þeim til að öðlast skilninga á hversu stórkostlega hæfileika þeim er gefið. Umbreytingarhópurinn eru töfraverurnar sem munu halda áfram að vinna og virkja líffræðibreytingarnar á þessari plánetu, sem stuðningur við umbreytingarferlið og hjálpar þeim að finna ljósbrautina heim.

Þið eruð mörg hér á staðnum í dag. Sum ykkar eruð að heyra þessi tíðindi í fyrsta sinn og þið nemið það í hjörtum ykkar að við erum að tala til ykkar. Já, það gerum við. Því nú er tíminn til að sá fræjum, því þiðverðið kölluð fljótlega til aðgerða og vinna ykkar mun verða virt á öllum tímum. Svo þegar þið ákveðið að koma heim, mun ykkur vera fagnað af æðstu englum, því mörg ykkar gera sér ekki grein fyrir hvað bíður þeirra. Þeir sem taka á móti ykkur munu leiða ykkur inn í sal hinna mörgu lita, þar sem dynjandi fagnaðarlæti munu standa yfir dögum saman. Þetta er fyrir ykkur. Þetta er fyrir þá vinnu sem þið hafið framkvæmt. Þetta er fyrir þau hjörtu sem þið hafið snert. Þetta er fyrir þann kærleika sem þið hafið gefið. Hugsið um þetta. Svo þegar ykkur fynnst þið vera föst, á þeim tímum sem þið fynnið ekki tengingarnar, stigið eitt skref áfram og verið meðvituð um að við stöndum að baki ykkar, því þið eruð ekki ein. Okkur er heiður af, að fá að vera með ykkur og spegla kraftinn ykkar og aðstoða ykkur við vakna til nýrrar meðvitundar.

4. Að tengja ljóshringina inn í ljóskeðju

Meðhöndlið ykkur sjálf sem óaðskyljanlegan hluta af Guði, því þið eruð það. Meðhöndlið ykkur sjálf með fullri virðingu, það gerum við. Meðhöndlið ykkur sjálf sem mannlega engla, það sem þið eruð, vængir ykkar eru í vexti. Þið leitið oft eftir svörum, frá okkur eða öðrum gagnvart framtíðinni. Það var enginn Guðlegur ásetningur, eins og þið hafið leitað eftir. Þið eruð að móta framtíðina eftir eigin vali. Þið eruð sköpunarkrafturinn! Þið eruð að byrja að öðlast skilning á vísbendinunum, meðan þið uppgötvið sannleikskraftinn ykkar, í gegnum ykkar líffræðilegu uppbyggingu. Leikvöllur hins frjálsa vals hefur skilað árangri. Eftir allar umræðurnar, eftir allann efann, eftir allar þær stundir sem við höfum snert orkusviðið ykkar og hjálpað ykkur að muna að hér virkjum við kraftinn hvort fyrir annað. Það eru ákveðnir ljóshringir sem eru til staðar og svipað að kasta steini í vatn, að þeir vaxa sem stigvaxandi hringrás. Þannig sjáum við ykkur, því hvert ykkar um sig er umvafið ljóshring. Ef þið felið hann og haldið honum til baka og teljið ykkur trú um að enginn skylji ykkur, mun enginn sjá hann. En ef þið stigið fram og segið hughraust, Ég er ljóshringur og ég vil tegjast þínum, munu ljóshringirnir mynda órjúfanlega keðju, því þið eruð fjölskylda ljóssins og nú er stundin runnin upp. Við erum svo hreikin af ykkur. Finið ykkar leiðir til að tengjast í kærleika og ljósi og allt mun falla saman á undursamlegan hátt. Myndið smáhópa til að virkja tengingar og beinið ykkar fókus á tilganginn. Myndið stærri hópa af fólki sem eru sama sinnis, til að leita leiða til að stækka hringina, á meðan þið sameinist um að leita æðri sannleika. Munið að þessir hringir meiga aldrei vera einangraðir, þar sem ljósið er alheimslegt og tilheyrir okkur öllum. Finnið leiðir til að tengja ljóshringina og orkusviðin  sem þið sækið heim, munu fá stöðugann grunn á jörðinni.

Leyndardómurinn mikli

Við byðjum ykkur að vera stöðug í þeim sannleika sem þið eruð . Staðtengið kraftinn ykkar og undirbúið ykkur vel svo þið getið veitt öðrum meiri kraft. Þetta er flæði alheimsorkunnar. Ykkar val hefur leitt ykkur hingað. Þið verðið að skilja að á leikvelli hins frjálsa vals, að þar er ekkert til sem heitir rangur valkostur. Þetta er hinn mikli leindardómur sem þið hafið dulið frá ykkur sjálfum. Ykkar raunveruleiki er ykkar ábyrgð  og ef ykkur líkar ekki hvar þið eruð staðsett, endurskoðið afstöðu ykkar. Þið eruð meistararnir og hafið sigrað á leikvelli hins frjálsa vals. Leikurinn færist nú upp á annað stig.

5. Önnur pláneta hins frjálsa vals

Það eru orkurásir sem eru að opnast, jafnvel á þessari stundu. Við viljum láta ykkur vita að þetta er ykkar framkvæmd og þess vegna virðum við ykkur svo mikið. Þess vegna hafa augu alls alheims beinst að ykkur. Vegna þess að þessar rásir munu vera notaðar fyrir manneskjur til aðkomu á plánetu hins frjálsa vals til að sjá hvernig þið fóruð að þessu. Þið munuð verða bókafræðingarnir til að aðstoða þær við að fá svörin sem þau leita. Það er okkur mikið fagnaðarefni að geta sagt ykkur að þið eruð ekki lengur eina pláneta hins frjálsa vals. Það er önnur. Hún er byrjuð. Þið hafið skapað hana. Þið hafið komið henni á hreyfingu og allir munu fylgjast með ykkar vali, því þið eruð ekki eina pláneta hins frjálsa vals. Þið eruð fyrsta pláneta hins frjálsa vals. Getið þið skilið hvers vegna við erum svo hreikin af ykkur? Getið þið skilið hvernig ykkar litlu valmöguleikar í deginum og ringulreiðin sem þið upplifið stundum og tilfinningin um að vera glötuð, hefur haft áhrif á allann alheiminn? Eini möguleikinn til að leika þennann leik, var að hylja hann blæjum, til að þið yrðuð ekki meðvituð um ykkar raunverulega kraft, í ykkar mótun. Við segjum, að þið hafið spjarað ykkur vel. Okkur þykir svo vænt um ykkur.

Á þeim tímum sem ykkur fynnst þið vera glötuð, á þeim tímum sem þið munið ekki hver þið eruð, hugsið til okkar, því við stöndum að baki ykkar með opna arma. Okkar vængir eru einfaldlega til speglunnar á krafti og storfengleika mannkyns, því ykkur hefur tekist að virkja breytingar á leikvelli hins fríja vals. Nú munuð þið skrá söguna. Nú munuð þið skjalfesta söguna af því hvernig þetta var framkvæmt, því margir munu koma og leita upplýsinga. Þannig munu orkurásirnar vera notaðar. Upprisan sem þið hafið beðið eftir, er nú að nálgast. Hún er komin í gang og þið munuð ekki yfirgefa þessa plánetu. Þess í stað, munuð þið koma heim, hingað. Þið hafið unnið gott starf og við erum hreykinn af ykkur. Við erum hreykin að hafa ykkur í fjölskyldunni því þið hafið notað orkuna vel.

Verið stöðug í þeim sannleika sem þið eruð. Verið stöðug í trúnni á þessum tímum. Verið meðvituð um að þið eruð aldrei ein, kærleikurinn sem þið nemið, er frá okkur, sem við beinum yfir axlir ykkar. Vörðurinn er hér, í gegnum okkar tjáningu, en hann er ekki sá eini sem getur haft beint samband við okkur. Við erum til staðar fyrir ykkur öll, eins og við höfum alltaf verið. Þið verðið bara að spyrja, því það er aðeins ein regla á leikvelli hins frjálsa vals.

Þegar við byrjuðum þennan leik með ykkur, þá settuð þið reglurnar og kusuð að færa ykkur undir hjúp gleimskunnar og þið leystuð það vel af hendi. Okkur kom ekki til hugar að þið mynduð muna og færa leikinn upp á nýtt stig, eins og þið eruð að gera. Ykkur hefur tekist að fara fram úr ykkar og okkar björtustu vonum. Áður en þið hverfið heðan í dag, horfið í augu hvers annars og fynnið uppruna ykkar andlegu fjölskildu, því nú er stundin runnin upp. Þetta er stundin til að gangast við vængjunum sem eru ykkar, sem mannlegir englar, því við erum svo hreykin af ykkur.

6. Upprisan er hafin og sögusviðið að hefjast!

Það er mikið sem mun gerast á plánetunni ykkar á þessum tímum,tímar umbreytinganna eru byrjaðir fyrir alvöru. Já, það mun ríkja ótti á plánetunni. Reynið að skylja að ótti er ekkert annað en skortur á upplýsingum. Það er tómarúm sem dregur allt til sín og alla orku sem er í námunda við það. Allt sem þið þurfið að gera til að eyða óttanum er að dreyfa upplýsingum. Um leið og þið þreyfið upplýsingunum, mun tómarúmið hverfa. Fyllið tómarúmið með kærleikskrafti hjartans, því það er það sem þarf. Jafnvel þótt þið hafið ekki öll svörin, fylgið hjartanu, því þannig tölum við til ykkar og hjartað ykkar þekkir leiðina heim. það hefur verið þar mörgum sinnum.

Fynnið rími í ykkar tilveru til að gefa mannkyni aukinn styrk. Fynnið uppsprettu kraftsins sem við erum að tala um og fynnið leiðir til að virkja þá sem eru með ykkur. Það mun þjóna þriðja áratugnum, svo þegar þið stigið inn í þessa töfratíma, þá verðið þið umvafin í töfrum. Þið hafið skapað möguleika fyrir margar plánetur hins frjálsa vals. Þið hafið mótað það, mín kæru.  Vinsamlega, hafið það í huga. Ykkar ákvörðun hefur skapað þetta frá grunni. Það er ykkar ákvörðun sem hefur fært ykkur hingað í dag  og við erum afar hreykin af ykkur. Lýtið í kring um ykkur. Horfið í augu hvors annars. Snertið hvort annað með englasnertingu og við munum svara með stóru faðmlagi og mildri snertingu. Við byðjum ykkur um að láta þau ganga, hvers til annars, því við sjáum ykkur sem börn í myrkvuðu herbergi. Hvert ykkar um sig hefur sömu hvatninguna, um að fynna ljósið, samt rekist þið hvort á annað, þið rekist á veggi, þið þvælist hvert fyrir öðru í einlægri hvatningu, til að fynna ljósið og útgönguleiðina. Við getum sagt ykkur að það er aðeins ein leið sem þið getið farið, til að komast út úr myrkraherberginu og hún er að haldast í hendur. Lýtið í kring um ykkur því þið eruð ekki ein í þessu myrkraherbergi. Þið eruð ekki þau einu sem hula gleymskunnar hvílir á. Leitið æðri sannleika og þið komist heim. Að sleppa er lykillinn.

Leyfið ykkur að losa um það sem heldur ykkur til baka. Okkur skylst, að losa um eitthvað sé eitt það erfiðasta fyrir mannkyn að framkvæma, Því að hafna breytingum, er í ykkar eðli. Við segjum gefið ykkur frjáls, Því þess sem þið leitið, er þegar til staðar, í ykkur sjálfum. Þið þurfið aðeins að sleppa því sem heldur ykkur frá því að kynnast ykkar eigin sannleika. Sleppið því sem heldur ykkur til baka og seilist eftir æðri sannleika því nýr himinn á jörð er í birtingu sinni. Byrjunin á árþúsundinu er byrjun á nýju ferli. Sköpun á heimili er í hnotskurn. Það sem þið kallið upprisa (ascension) er hafin. Við undirstrikum aftur , Verið meðvituð um að  þið eruð ekki lengur eina pláneta hins frjálsa vals. Nú er komin önnur og þau vilja vita hvernig þið fóruð að. Þið hafið þroskast frá nemanda og upp í kennara. Verið kennararnir. færið inn ykkar þekkingu. Færið inn ykkar sannleika og búið ykkur undir að deila honum með öðrum. Nú er stundin runnin upp. Velkomin heim. Nemið kærleikann í umhverfinu og þá elsku sem umvefur ykkur og leiðir ykkur. Það er ykkar stórfengleiki sem þið nemið. Hann er ykkar. berið hann. Deilið honum með hreykni, á sama hátt og við erum hreykin af ykkur. Þið eruð að skapa ykkur heimili  ykkar megin hulunnar. Velkomin heim. Velkomin heim. Velkomin heim.

7. Sérfróðir leiðbeinendur fyrir ferðina framundan

Við byðjum gæsluvörðinn afsökunnar, við höfðum lofað honum að við myndum ekki knúsa hann svona þétt, en við höfum víst gert það. (Tár) Orkan sem þið nemið í umhverfinum er stórfengleg. Samt, eruð þið ekki þau einu sem eru í þessari orku. Þetta umhverfi er afar, afar þéttsetið. Það eru mörg yfirtónsvið sem eru til staðar, því allir leiðbeinendur kennaranna ykkar eru hér með ykkur og sitja við fætur ykkar í þakklætisskyni. Þeir umfaðma ykkur og stundum er það eina sem þeir geta gert, er að fá hárin til að rísa á örmum ykkar. Kannist við þá, verið með þeim og þakkið þeim fyrir að vera hér. Þeir eru hluti af ykkar tilveru og sameiginlega hafið þið gert vel. Það hafa alltaf verið sérfróðir leiðbeinendur sem hafa unnið með ykkur í stuttan tíma þegar þið hafið þjónað ákveðnum ásetningi eða verkefni. Nú þegar þið takið að ykkur stærra verkefni í þriðja áratugnum, þá hafið þið tækifæri að fá með ykkur sérfróða leiðbeiendur, til að vinna með ykkur í gegnum þessa tíma. Þetta eru sérfræðingarnir sem eru vel upplýstir um framþróun ykkar og þá píslargöngu sem þið þurfið að ganga í gegnum. Þið þurfið aðeins að ákalla þá og þeir munu vera til staðar. Þið hafið alltaf haft þennan kraft, þó er nauðsynlegt að mynna ykkur á þessi sérstöku verkefni. Þessir sérfræðingar bíða aðeins eftir beyðni ykkar um tengingar fyrir leikvöll hins frjálsa vals, því það er aðeins hægt að ljúka verkefni, sé það unnið með ásetningi.

Sumir ykkar hefðbundnu leibeinenda virðast hafa dregið sig í hlé, til að auðvelda þessar tengingar fyrir ykkur. Mörgum ykkar hefur fundist að leiðbeinendur ykkar hafi yfirgefið ykkur. Þetta eru einfaldlega tímar samvirkjunar, svo inngangskafli sérfróðra leiðbeinanda gæti hafist. Þessir nýju leiðbeinendur munu ekki leiða ykkur, á sama hátt. Heldur, munu þeir vinna með ykkur, til að virkja aukinn kraft. Látið ykkur ekki fynnast að þið hafið misst eitthvað, því þið hafið ekkert misst. Fynnið frekar ti eftirvæntingar, um þá möguleika sem ykkar sérhæfðu leiðbeinendur, munu leiða ykkur í. Þeir eru hér til að tengjast ástríðuferlinu ykkar, til að endurskapa heimilið. Þeir munu ekki taka orkuna ykkar, svo reynið ekki að láta hana í þeirra hendur, því það mun draga úr virkjun hins raunverulega verkefnis. Meiri upplýsingar, um þessa sérfræðinga munu berast fljótlega.

Við fylgjumst með, af eftirvæntingu þegar þið stigið upp á næsta stig, mannlegrar tjáningar. Þið hafið gert vel og okkur er heiður af því, að vera hér með ykkur, þegar þið takið við gjöfum þriðja áratugarins. Það er með æðstu virðingu, sem við byðjum ykkur um að sýna hvort öðru tillitsemi, að nota orkusviðið ykkar, til að styrkja hvort annað svo þið getið séð hversu stórfengleg þið eruð. Gleimið ekki leiknum, kæru vinir, því ef okkur fynnst þið taka hann of  alvarlega munum við kitla ykkur undir uggum til að mynna ykkur á að þetta er aðeins leikur. og í Guðanna bænum, verið góð hvert við annað.

the Group

Við eyddum deginum í Eindhoven, Hollandi og ræddum við ljósbera úr öllum stettum lífsins. Þetta var dagur fylltur  kærleika, ljósi og faðmlögum. Við erum þakklát fyrir alla þá stórkostlegu vinnu af öllum þeim einstaklingum sem virkja ljóshringina, ekki aðeins í Hollandi, heldur alls staðar í heiminum. Þegar tveir eða fleiri koma saman og haldast í hendur, þá gerast kraftaverk og við breytum heiminum. Þetta er eina leiðin til að fynna útgönguleiðina á myrkraherberginu. Haldið áfram ykkar stórkostlegu vinnu . Þið eruð að skapa breytingar!

Opin faðlög og mildar snertingar

 

 

~Ljósvita hugleiðingin~

Andið djúpt um stund og staðtengið orkuna. Byðjið ykkar leiðbeinendur um að vera með ykkur í huleiðsluferlinu. Við munum ferðast saman inn í umhverfi mikilla töfra. Komið ykkur fyrir, festið sætisólarnar. Fjarlægið borðin ykkar og komið stólunum ykkar fyrir og hafið bökin bein. Andið djúpt. . . við ætlum að hefja ferð inn í nýja vídd…á stað sem tími og rúm er ekki til staðar eins og   við þekkjum það…við erum að nálgast…… Þriðja áratuginn.

Þetta hefur verið löng ferð. Þið hafið ferðast í þessu loftfari í nokkra daga og munum lenda fljótlega. Það er eftirvænting í farinu, því margir hafa verið lengi að undirbúa sig fyrir þessa ferð. Flugþjónninn truflar hugsanir ykkar: “Herrar og frúr við erum að nálgast áfangastað. Vinsamlega takið saman persónufarangur ykkar og undirbúið ykkur fyrir lendingu. Staðartíminn ykkar er “Nú” tími svo vinsamlega setjið klukkuna.”

“Við vorum að lenda og erum að fara inn í aðkomuhliðið. Vinsamlega verið kyrr í sætum ykkar þar til farartækið hefur numið staðar og flugstjórðinn hefur slökt á fasten seatbelt merkjunum. Sérfróður leiðbeinandi sem mun  leiða ykkur áfram í ferðinni mun taka á móti ykkur inn í flugstöðinni. Þegar þið hafið lokið ykkar ferð, þá vinsamlega komið aftur að hliðinu og okkur er ánægja að flytja ykkur heim með næsta flugi. Við höfum haft ánægju af ferðinni og við þökkum ykkur samfylgdina. Flugstjórinn, ég og öll áhöfnin frá nýju jarðar-bækistöðinni þakkar ykkur samflugið.”

Þegar loftfarið nemur staðar opnast dyrnar og farþegarnir byrja að flykkjast út á flugvöllinn. Um leið og við förum inn í göngin úr loftskipinu út í flugskýlið þá fynnum við hvernig eftirvæntingin byrjar að koma upp. Hvernig verður þetta? Þið eruð forvitin. Við enda gangnana sjáið þið hóp af fólki, sem býður eftir að taka á móti þeim sem hafa komið með loftskipinu. Þú nemur snertingu og þú lýtur upp og horfir í augun á stórkostlegri veru, sem stendur við hliðina á þér. Hún brosir til þín og segir: “Ég mun vera þinn sérfróði leiðbeinandi, á meðan þú dvelur hér á sögusafninu. Hér er margt að sjá og mitt starf felst í að aðstoða þig við að fynna það sem þú leitar eftir. Alheimssafnið hefur að geyma ótæmandi lærdóm, sem uppfyllir þarfir þínar á þessum tímum. Þú munt ákveða þitt eigið námsefni og reynslu.” “Þú spyrð?” Hvað heitir þú. ” Sérfróðir leiðbeinendur bera ekki nafn eins og þið mynduð gera ykkur í hugarlund. Í raun er engin ástæða fyrir skilgreiningu, því okkur er ekki ætlað að hafa vald, og skilgreining myndi bara vera okkur til travala.” Um leið færir hún þér dökkgræna skífu um tvær tommur í þvermál. “Þetta er þín persónuskífa sem vígslverkar þínar orkutengingar. Þetta er tengingin við Achasic skjölin sem hafa að geyma allar upplýsingar og hún mun vera þér gagnleg á meðan þú dvelur hér í safninu.”

Hinn sérfróði leiðbeinandi sýnir þér þinn dvalarstað og eftir smá hvíld færðu löngun til að byrja að skoða þig um. Þú manst eftir græna disknum sem leiðbeinandinn gaf þér og á þessu augnabliki er barið á hurðina. Veran er komin og er eftirvæntingarfull með byrja að sýna þér safnið. þegar þú kemur fram, þá sérð þú ýmis blæbrigði lita til að byrja með. Það eru vaxandi blæbrigða geislandi lita af grænum og bláum. Þú hefur aldrei áður séð svo geislandi liti í umhverfi þínu. Himininn fyrir ofan þig hefur að geyma geislandi fagurbláan lit og þú tekur andköf þegar þú lýtur hann fyrsta skipti. Fegurð þessa staðar er næstum yfirhylmandi. Þú lýtur í kring um þig og þú sérð að leiðbeinandinn er horfinn. Þú hefur ekki áhyggjur vegna þess að þú nýtur umhverfisins og byrjar að skoða þig um á eigin spýtur.

Eftir að hafa skoðað þig um í stutta stund, þá kemurðu að dyrum sem liggja að fordyri lagt með því sem myndi lýsa svörtum steinsúlum. Allar eins u.þ.b. 6 metra háar og þriggja metra breiðar. Þær virðast vera lagðar úr steini eða efni sem þú hefur ekki séð áður. Við augnhæðina á þessari steinmynduðu byggingu er rifuop. Að öðru leiti eru engin sjáanleg mörk. Sérfróði leiðbeinandinn þinn birtist nú skindilega til að svara þinni þöglu spurningu. “Færðu skífuna í rifuna og skjalasafnið mun vakna til lífsins. Ég er þinn persónulegi skjalavörður og ég mun vera hér til staðar fyrir þig á öllum tímum, þú þarft aðeins að spyrja. Ég mun leiðbeina þér í að fynna þekkinguna sem þú leitar eftir. Það er nauðsynlegt fyrir þig að vita að ég er ekki kennarinn þinn því enginn getur tekið þá ábyrgð fyrir þig. Í þessu skjalasafni verður þú að læra á eigin spýtur.”

Þú spyrð: “Hvernig veit ég hverskonar upplýsinga ég leita?” Og svarið kemur: Svörin eru auðveld, því þú þarft aðeins að muna spurningarnar. Þetta er sérstakt skjalasafn, ólíkt öðrum í þessum alheimi. Hér er allt skráð sem framkvæmt hefur verið. Stórkostlegustu tilraunir allra tíma eru hér, fyrir þig til að skoða. Skref fyrir skref, hvert stig og hver ákvörðun sem hefur verið tekin, er hér þér til skoðunar. Þegar þú yfirgefur skjalasafnið getur þú tekið með þér hverja þá þekkingu sem þú hefur löngun til. Samt sem áður, það sem þú tekur með þér til baka til jarðar getur þú haldið, aðeins ef þú getur notað þær upplýsingar í þínu daglega lífi.”

Næstu dagarnir eru fullir eftirvæntingar á meðan þú færir þig frá einni súlu til annarar. Hver um sig hefur að geyma leyndardóminn að baki helstu tilrauna sem framkvæmdar hafa verið. Í hvert skipti sem þú leggur litlu grænu skífuna í raufina Þá upplifurðu  þrívíddar-reynslu, eins og þú sért á staðnum á þeim tíma sem atburðurinn átti sér stað. Lexíurnar voru svo gagnvirkar að þér fannst þú vera þáttakandi í leiknum.

Dagarnir skiptust í vikur og vikur í mánuði. Einn morguninn þegar þú ætlaðir að leggja diskinn í næstu rifu og ekkert gerðist. Þú kallar á þinn sérfróða leiðbeinanda og hann birtist á augabragði. “Þú spyrð´hvað geri ég rangt. Eru tækin biluð?” “Nei minn kæri, þínu námi er lokið. Þér hefur áskotnast það sem þú leitaðir eftir. Nú er sú stund runnin upp, að þú verður að fara til baka og virkja þínar framkvæmdir. Þú hefur frjálsan vilja og þú munt læra að nota þessar upplýsingar í þinni eigin lífsreynslu. Mundu töfrana sem þú upplifðir í þessari tilveru og notaðu þá áfram. Gleymdu aldrei að þú hefur valmöguleika og þar af leiðandi ótakmarkað vald.”

Næsta morgun gengur þú um til að upplifa hina miklu fegurð sem skjalasafnið hefur að geyma einu sinni enn. Þú fynnur gleði í að doka við hvern geisla hinna ljómandi lita, blómskrúður og grasvellir gefa þessum sérstaka stað töfraljóma. Þú heitir þér að þú skulir muna  allt sem þú hefur numið á þessum stað og nýta þér þann lærdóm sem þú hefur numið. Þú situr og horfir á útsýnið einu sinni enn, þú tekur inn alla þá fegurð og stórfengleika sem umhverfið hefur að geyma. Þinn sérfróði leiðbeinandi birtist hjá þér einu sinni enn. “Þú hefur staðið þig vel í náminu og við erum sannfærð um að þú sért komin með allar nauðsynlegar upplýsingar sem þú þarft til að komast áfram. Erfiðast er að þurfa að kveðja því vantumþykjan og kærleikstilfinningin á sér djúpar rætur. Ég þakka þér fyrir að fá að aðstoða þig í þeim leik sem þú tekur þér fyrir hendur. Þau verkefni sem þú hefur leyst hér af hendi munu snerta fleyri en þú gerir þér í hugarlund.” Á þessu augnabliki, hvarf sérfróði leiðbeinandinn sem þér var farið að þykja svo vænt um.

Stundu síðar ertu komin inn í gamalkunn göng á leið þinni inn í loftfarið, til að koma aftur heim. Jafnvel þótt þú hafir saknað heimaslóðnna, þá hefur þú blandaðar tilfinningar því þetta sérstaka ævitýri þitt hefur verið blessunarríkt. Þú sest í sætið þitt, flugþjónninn byrjar að fara með þér í gegn um öryggisbúnað Akasha 303  loftfarsins. Röddin í kallkerfinu segir: “Við munum nú færa ykkur til baka til lengdartímans. Þið munuð aðeins hafa þokukenndar hugmyndir um ferðina ykkar hingað og ykkar fyrstu heimkomu. Þið þurfið að vita að þetta eru eðlileg viðbrögð, þegar ferðast er á milli hliða og þær upplýsingar sem þið hafið fengið eru varðveittar í ykkur . Þið munuð halda öllu, svo lengi sem þið framkvæmið það, þegar þið nemið hina mildu snertingu. Á þessari stundu viljum við byðja ykkur um að festa sætisólarnar og búa ykkur undir brottför. Okkur er kunnugt um að þið hafið valmöguleika í geimferðum og okkur þykir vænt um að þið fljúgið með Akasha.” Á meðan loftfarið byrjar renna sér út á brautina, horfir þú út um gluggann. Þú sérð vegvísir fyrir framan farið, á því stendur: “Þú ert nú að hverfa frá plánetu Jörð…. Fyrstu plánetu hins frjálsa vilja.”

Eftir langvarandi svefn, opnar þú augun og fynnir þig sitjandi þar sem þú hófst þessa ferð. Þú veltir því fyrir þér ef þetta ævintýri hafi verið draumur, þú horfir um herbergið. Þokukenndar hugsanir um annan tíma og stað leita á þig með ljúfar mynningar. Þegar þú stendur upp til að yfirgefa herbergið dettur eitthvað úr vasa þínum. Á gólfinu liggur lítil dökkgræn skífa.

Og þetta er allt sem er. . .

 

Tilkynning um höfundarrétt

Höfundarréttur 2001 Steve Rother. Þessum upplýsingum má dreyfa sem heild eða að hluta, það er ekkert gjald fyrir þessar upplýsingar, en við óskum eftir að þetta viðhengi fái að fylgja. Þegar notaðar eru greinar úr þessu efni, eða að hluta, þá látið koma fram að þetta sé hluti af heildargrein og vísið lesandanum á heildargreinina með þessari netslóð http://www.espavo.org/beacons/ Frekari upplýsingar frá Steve Rother and the Group má fynna á vefsíðunni : http://www.espavo.org/ eða hjá Lightworker í síma (858) 748 5837.