Apríl 2001

Hvirfill jarðar
Vakning verndarans!

 

~Áminningar að heiman~
Frá Steve. . .
Í gærkveldi var ég meðljósvitaþessa mánaðar tilbúinn til afhendingar, fyrir útgefandann okkar í Toronto þegar þeir stoppuðu mig af, að senda það. Það virtist sem þeir hefðu sérstök skilaboðsem þeir vildu kynna á þessum tíma. Ég veit að tímasettning á skilaboðum getur verið afar mikilvæg. Gamli maðurinn með hvíta skeggiðhefur beðið þolinmóður eftir þessu augnablikií tímasetningunni. Í síðustu orkubreytingunni er hann kallaður til starfa. Hann lyftir hendinni upp og beinir fingrinum uppá við, hann lætur fingurinn síga í þakklæti, sem tákn um að stundin sé komin. Ég tilkynni með stolti . . .

 

 

From the Group:

Kveðjur að heiman:

Velkomin heim, útvaldir

Okkur er heiður í að vera í nærveru meistara hinnar nýju orku. Þið eruð þau útvöldu sem boðið fyrirheitið um nýtt ljós á leikvelli hins frjálsa vals. Stund endurkomu ykkar hefur verið spáð fyrir og miskilin í langan tíma. Þrátt fyrir allann rugling, eruð þið hér. Þið eruð hin merkta kynslóð sem hefur fundið leiðina hingað eftir innri vitneskju um að ykkar bíði ákveðið verkefni. Já, svo mun vera og nú er stund hinna útvöldu runnin upp. Þið hafið heyrt kallið og nú sameinist þið, til að öðlast styrk fyrir ferðina inn í margvíddar-raunveruleikann sem er nú ykkar valkostur. Þið eruð hér á þessari stundu að hafa áhrif á sameinaða sveiflutíðni mannkynsins. Mannverur jarðar eru nú í öflugri sveiflutíðni sem mun viðhalda orkuhringiðu, sem mun opna og tengja leikinn ykkar við annarar víddar raunveruleika.

Ykkar raunveruleiki hefur verið að breytast nokkra undanfarna mánuði á hraða sem aldrei hefur átt sér stað áður á plánetu jörð. Þetta hefur verið skoðað sem ókyrrð fyrir marga, en hleðsla fyrir hina. Fyrir ykkur sem eruð næm fyrir jörðinni hafið numið innstreymi orkunnar sem hleðslu fyrir sameiginlega rafhlöðu. Heilarar sem eru næmir fyrir tilfinningaorkunni gætu hafa fundið rifur í orkubyggingu þessarar orku undanfarna daga. Þessi orka mun samlagast á komandi mánuðum og mun hafa áhrif  á allann margvíddar-raunveruleikann samtímis.

Við tölum um jörðina svipað og um persónuleika, því í okkar augum er hún raunveruleg skyni gædd vera. Það er kryddið í orkusviði jarðar, sem er lagt að jöfnu með persónuleika mannsins. Staðreyndin er sú að þið hafið alltaf vitað að þið eigið sterkar tengingar með jörðinni þótt þau atriði hafi ekki snert ykkur til þessa. Frá okkar sjónarhorni eruð þið eitt og það sama. Jörðin er einfaldlega annar margvíddar-raunveruleiki, frá ykkar tilveru. Ykkar tími og rúm er stórlega misskilið, því eins og við höfum sagt ykkur áður, það eru margir víddar-raunveruleikar til staðar innan sama rúms og tíma. Nú er tíminn til að virkja sterkari tengingar, með þessum margvíddar-raunveruleikum.

Hringiðumyndun á sólinni

Það var aðeins fyrir stuttu síðan að við töluðum um þá tíma þegar allar tilfærslur inn á ástríðurnar myndu öðlast aukinn styrk. Sjö mánaða tímabil byrjaði 13. Oktober 2000 þá myndaðist gluggi, sem opnaði tækifæri á leikvellinum fyrir aukna sköpunarvirkjun. [Þetta kom fram í miðlun sem átti sér stað í New Jersey, sem þið getið lesið hér: “Now is the Time”] Þótt það hafi verið erfitt fyrir ykkur, þá áttu sér stað tilfærslur ástríðna á plánetu Jörð, kraftmeiri en áður hefur þekkst. Núna, sem bein afleiðing, munu orkuhringiður festa rætur á Jörðinni. Þessar hringiður munu mynda sterkar tengingar milli margvíddar-raunveruleika mannkyns og Jarðar. Þetta mun að lokum, koma á endanlegum tengingum, á milli allra margvíddar-raunveruleikana, sem hafa verið kallaðir himinn og Jörð.

Til þess að móðirin geti myndað þessi hlið (rásir), þarf hún að meðtaka og virkja orku langt framyfir eðlilegar kröfur. Alheimurinn brást við viðleitni hennar með orkuhringiðu, sem var mynduð á Sólinni okkar. Þessi hringiða náði hámarki sínu 29. Mars 2001 og sveiflaðist út sem orkubylgja sem byrjaði að samlagast 2. Apríl 2001. [Síðan ég skráði þetta hefur þetta Sólgos verið skilgreint sem stærsta sólgos sögunnar. Myndir og MPEG kvikmyndir getið þið skoðað í gegnum tenglana hér fyrir neðan. Í þessum kvikmyndum sérstaklega í þeirri grænu, getið þið séð hringiðu myndast.
http://sohowww.nascom.nasa.gov/hotshots/X17/eit_195s.gif &
http://sohowww.nascom.nasa.gov/hotshots/X17/ ] Það er sem kall hafi borist út um allann alheim sem náði öllum margvíddar-raunveruleikum á sama tíma.

Gæslumenn hringiðunnar vaktir!
Þau eru á meðal ykkar sem hafa numið þetta kall fyrir mörgum árum og í gegnum ykkar eigin ásetning og helgun byrjað að mynda orku-hringiður á pánetu jörð. Við sjáum þessar hringiður sem merkta orku-hvirfla. Sum ykkar hafa verið dregin til að opna nýjar orkurásir á mismunandi svæðum jarðarinnar. Við getum sagt ykkur að þetta hefur verið máttug vinna sem hefur komið miklu til leiðar. Orkumerkingarnar sem mynduðu efnisgrunn hringiðnanna hafa beðið þess lengi að vera virkjaðar. Það eru líka margir sem við þekkjum sem gæslumenn þessarar nýju orku. Þetta er fólkið sem mótar frumkjarnann og hlúar að ákveðnum orku-hringiðum. Þetta eru þeir sem ferðast á milli staða til að virkja nýja hringiðustarfsemi, eða heimsækja virkjaða hringi til að ná tengingum heim og styrka þeirra eigin orkurás. Þessar orkumerkingar í hringmyndun orkunnar munu vera rásirnar sem tengja margvíddar raunveruleikana saman að lokum. Allann þennan tíma helduð þið að það myndu verða geimskip sem þið notuðuð til könnunar á öðrum heimum. Geimferðir ykkar munu opinbera margt á komandi árum, eins og að gefa ykkur skilning á hvað þið geymið í bakgarðinum ykkar hér á jörð!

13. Maí 2001 Dagur hringiðunnar
Það eru margar orku-hringiður sem hafa verið mótaðar með ásetningi og helgun gæslumanna hinnar nýju orku. Nú hafa þessar orkurásir verið virkjaðar aðeins meira til að byrja að mynda tengingar á milli allra margvíddar-raunveruleikanna. 13. Maí er lokadagur hins sjö mánaða ferlis sem við höfðum sagt ykkur frá. Virknin er hafin og mun ná hámarki sínu, með virkjun alheimskrafta 13. Maí 2001. Notið þennan dag og tengið ykkar eigin orkuhvirfil. Færið ykkur inn á ástríður hjartans, því stund virkjunar er í hámarki þennan dag. Finnið jafnvel hina minnstu löngun og takið smærri skref til virkjunar þennan dag. Notið þennan tíma að auki til að mynda tengingar með Jörðinni, því hún vinnur nú í fullum samhljómi með ykkur öllum. Notið ykkar eigin athafnir og takið afstöðu á þessum degi kraftarins. Staðfestið ásetning ykkar og fylgið honum eftir og orkuhringiðan mun tengjast öllum á þessum tíma. Framkvæmið þetta ekki sem verkefni, heldur sem hátíðarhald. Jörðin er í hátíðarbúningi þennan dag þegar hún bókstaflega afhjúpar sig. Fagnið með henni og verið vísvitandi eining af kærleika sem er afleiðing þessa stórkostlega atburðar.

Hjálp frá gömlu verndurunum
Fyrrverandi verndarar jarðorkunnar eru allir með ykkur í eftirvæntingu á meðan þið takið þessi skref. Þetta eru Höfrungar og Hvalir. Þeir hafa fært gæslu plánetunnar í ykkar hendur og stíga nú til hliðar og fylgjast með þegar þið stigið hin ábyrgðarmiklu skref í gæslu jarðorkunnar. tengið ykkur oft þessum uppsprettum, því samskiptin hafa verið aukin. Þótt þeir gegni ekki lengur gæsluhlutverkinu, þá hafa þeir gengið í hlutverk ráðgjafans. Notið þessar tengingar oft og leitið eftir þeim. Svo lengi sem verkefni eru fyrir þá, munu þeir vera til staðar.

Fyrstu kynni
Hafið þið nokkurn tímann ímyndað ykkur fyrstu kynnin við annan kynþátt af lífverum? Við getum sagt ykkur að það er styttra í það, en þið ímyndið ykkur. Hringiðan sem þið eruð að mynda og byggja upp er lykillinn að þessum kynnum. Því að orkutengingarnar gegnum verkfærin og rásirnar munu fella víddirnar saman. Byrjið á því að komast í snertingu við Jörðina, því hún geymir lykilinn. Við getum sagt ykkur að eftirvæntingin á mörgum yfirtón-sviðunum umhverfis Jörðina eru öll suðandi í spennu, því þið eruð nú að skapa umfangsmiklar breytingar, svipað og breytingarnar 5. Maí árið 2000. Óttist ekki mín kæru. Þið eruð búin undir verkefnið framundan. Vinsamlega munið að þið eruð Meistarar hinnar nýju orku. Þið eruð hin útvöldu og þið hafið tilgang, með að vera hér. Ef ykkur finnst erfitt að muna stórfengleika ykkar, þá skoðið ykkur með okkar augum og minnist heimkynnanna.

Það er með mesta heiðri að við biðjum ykkur að umgangast hvort annað með virðingu, hlúið hvort að öðru og leikið ykkur vel saman.

the Group

Ég get séð núna hvers vegna þessi skilaboð voru svo nauðsynleg á þessum tíma. Það ánægjulega er að hér í Bandaríkjunum er 13. Maí mæðradagurinn. Gleðilegann mæðradag, Móðir Jörð!

the Group.

 

 

~The Beacons of Light Hugleiðslan~

Taktu smá stund og myndaðu orkutengingar. Mildaðu fókusinn og byrjaðu að sameinast umhverfinu í nokkra stund á meðan við ferðumst saman.

Síðan skaltu byðja þína leiðbeinendur að vera með þér á meðan við sameinumst í þessari helgu vinnu. Fáðu leifi til að sameinast Jörðinni og að hún verði hluti af þínu hringferli á þessum tíma. Andaðu djúpt og finndu orkubreytinguna í herberginu. Ef það eru aðrir með þér í herberginu, þá takið höndum saman um stund, myndið hring, eða hring innan hrings til að tengja orkuna. Ef þú ert ein/n vertu þá meðvitaður(uð) um að þú ert ekki ein/n. Myndaðu orkutengingar með öðrum í samskonar hugleiðslu á þessari stundu.

Sendu orku í gegnum líkama þinn til að koma orkunni á hreyfingu. Taktu orku frá manneskjunni þér á vinstri hönd, hleyptu henni í gegnum líkama þinn, yfir til manneskjunnar þér á hægri hönd. Taktu orkuna inn í gegnum vinstri hendina og hleyptu henni út í gegnum þá hægri. Sjáðu orkuna þyrlast upp af sjálfri sér. Losaðu síðan um orkuna og leifðu henni að flæða í gegnum hringinn án þess að fylgja henni eftir.Finndu hvernig orkupúlsinn heldur áfram í gegnum líkamann. Vertu með í orkuhreyfingunum, þegar þær dansa meðal sálnanna í hringnum. Finndu hvernig hún styrkist í hvert skipti sem hún fer framhjá.Í gegnum eiginn ásetning, hefurðu fætt af þér orku-hringiðu. Hún hefur nú öðlast eigið líf. Dansaðu í orkunni og leifðu þér að gáskast með henni þegar hún flæðir í gegnum þig.

Nú skaltu taka djúpa innöndun og losaðu um hendur þeirra sem sitja næst þér. Þú finnur að orkan heldur áfram að virkjast í hringiðu-hreyfingum. Svipað og mildur hvirfill, orkan hefur mótast og byrjar nú að teygja sig upp. Hún myndar sig sem spiral uppá við og myndar þennslu út á við og stækkar hringinn.

Notið þetta augnablik og spyrjið persónulegra spurninga til Jarðarinnar, um braut ykkar framundan.

Takið síðan stund og færið persónulegan ásetning ykkar inn í orkuna sem þið hafið sett á hreyfingu þennan dag. Hvert ykkar talar upphátt, til að jarðbinda sveiflurnar.

Nú, ef þið viljið, getur hvert ykkar sent skilaboð til þeirra sem eru á öðrum víddum. Sendið þeim ykkar kærleikskveðjur og komið þeim vel fyrir í orku-hringiðunni.

Takist nú aftur höndum saman og tengist orku-hringiðunni sem þið hafið mótað. Spyrjið Jörðina hvort hún vilji taka við hringiðunni. Ef svarið er jákvætt, þá jarðtengið orkuna í hringiðunni ykkar niður í Jörðina og fylgist með, þegar hún hverfur í Jörðina. Ef þið finnið höfnun við þessu, þá þýðir það einfaldlega að þetta er ekki ákjósanleg notkun á þessari orku-hringiðu. Takið því hringiðuna ykkar og leysið hana upp í alheiminn, til að verða hluti af næstu hringiðu. Orku-hringiðan hefur nú að geyma orkusveiflur ykkar og ásetning, sem hún tekur með sér áfram. Treystið alheimi og Jörð til að finna ákjósanlegan stað fyrir þessa orku á meðan þið sleppið henni að fullu frá ykkur. Verið meðvituð um að þið munið tengjast þessari orku aftur í breyttu ástandi.

Takið nú stutta stund í að þakka Jörðinni fyrir að vera þáttakandi í ykkar reynslu. Nemið hvernig hún bregst við, þakklætinu ykkar.

Komið nú til baka úr þessari ferð og sjáið hvernig orkan hefur breyst í gegnum ykkar gjörðir. Takið djúpa innöndun að lokum og komið alveg til baka.

And so it is. . .

 

Tilkynning um höfundarrétt

Höfundarréttur 2001 Steve Rother. Þessum upplýsingum má dreyfa sem heild eða að hluta, það er ekkert gjald fyrir þessar upplýsingar, en við óskum eftir að þetta viðhengi fái að fylgja. Þegar notaðar eru greinar úr þessu efni, eða að hluta, þá látið koma fram að þetta sé hluti af heildargrein og vísið lesandanum á heildargreinina með þessari netslóð http://www.espavo.org/beacons/ Frekari upplýsingar frá Steve Rother and the Group má fynna á vefsíðunni : http://www.espavo.org/ eða hjá Lightworker í síma (858) 748 5837.