September 2000
Sveiflur heiðarleikans
4. Víddar sköpun
~ Ámynningar að heiman ~
Við erum á kafi í stórkostlegum leik sem nefnist feluleikur . Guð, í felum frá sjálfum sér, leitar að sjálfri sér. Nafnið á leiknum er, að muna. Þegar við munum að við erum í raun sá Guð sem við leitum að, þá getum við byrjað að tengjast öllum þeim krafti sem er. Hugmyndin er að byrja að nota “kraftinn” til að skapa okkar hjartans óskir. Að skapa okkar eigin raunveruleika og óskir hjartan, erum við í raun að skapa okkar heimili hérna megin hulunnar. Um þetta snerist leikurinn, alveg frá byrjun. Svo
hvernig sköpum við okkar óskir hjartans? Hver er sá töfrakraftur sem við eigum öll agang að og hvernig myndum við tengingar við hann?
The Group hefur oft talað um samsköpunar-listina og hér bjóða þeir aðrar sýnilegri auðveldari , einfaldari leiðir til að tengast þeim krafti sem er okkar frumburðarréttur. Það er okkar frumburðarréttur að skapa. Þegar við sköpum saman með okkar æðra sjálfi og alheiminum í kring um okkur, þá köllum við það samsköpun. Hvert okkar, sem gengur á þessari jörð hefur aðgang að þessum krafti ef við lærum að nálgast hann og ef við munum að hann er til staðar. Þýðir þetta að við getum öðlast allt, það sem hugurinn girnist? Þýðir þetta að við getum skapað okkar eigin raunveruleika? Þýðir þetta að ef okkur líkar ekki aðstæður okkar, að við getum þá breytt þeim? JÁ. Áframhaldandi skilaboð frá the Group eru alltaf byggð á einum mið fókus:
Við höfum sköpunarkraftinn.
Við fúskum með þennan kraft , en virkjum sjaldan sköpunartengingarnar sem virkja birtinguna fyrir framan okkur. Hugmyndin er að læra að nota þennan kraft með ábyrgum og áhrifamiklum hætti. The Goup hvetur okkur til kynnast þessum krafti og nota hann oft. Hvers vegna? Vegna þess, að þegar við byrjum að nota þennan sköpunarkraft, þá sköpum við óskir hjartans. Þetta er nauðsynlegt því við geimum heimilis-myndina í hjartanu. Í hvert skipti sem við tökum pensilinn og byrjum að munstra umhverfið, þá byggjum við svolítið meira af meistaraverki heimilis hér á jörð.
Hér býður the Group okkur annað sjónarhorn til að nota sköpunarkraftinn.
Kveðjur að heiman:
Heima er þar sem við sameinum hjartað í einingu og okkur er sannkallaður heiður í að senda ykkur þessar góðu ámynningar að heiman. Þetta er hressandi tími fyrir ykkur. Að finna þessar sveiflur aðeins í stuttan tíma mun hjálpa ykkar að komast í andlegt jafnvægi og endurnýjast. Við andlega endurnýjun eflist líkaminn. Það hafa orðið umskipti í orkusviði jarðar. Við sjáum þetta greinilega í orkuhjúpnum ykkar. Hulan hefur þynnst undanfarið og áhrifin má sjá frá báðum hliðum hennar. Við segjum ykkur að þið hafið skapað þessar breytingar. Hinar umbreyttu sveiflur jarðar hafa nú náð nægilegri hækkun til að hjálpa ykkur til að halda ykkar fulla styrk á meðan líffræðileg virkjun er að myndast hjá ykkur. Hjúpurinn á milli okkar raunveruleika er að þynnast á undraverðum hraða. Jafnvel við þessa þynningu, er ekki mögulegt fyrir ykkur að sjá sannleikann um hver þið raunverulega eruð. Það er okkur sannkallaður heiður, að spegla þá yfirsýn fyrir ykkur.
Að ferðast inn í fjórðu víddina
Eftir því sem þið færist lengra í gegnum fjórðu víddina , munuð þið finna meira hvernig heimurinn ykkar glatar mikilvægi sínu. Hlutir sem skiptu einu sinni máli, gera það ekki lengur. Stöðuleiki hinna fyrri hornsteina, sem þið byggðuð umhverfi ykkar heims með, munu nú byrja að færast úr stað og um leið byrjar nýtt ljós að skýna á ykkar tilveru. Þetta mun orsaka, að hinn eðlilegi stöðugleiki ykkar heims mun umbreytast í æðri raunveruleika. Að aðlagast þessari umbreytingu og að læra að nota ykkar eigin kraft til að skapa ykkar eigin raunveruleika með ábyrgð, er virkjunin sem mun færa ykkur inn á næsta tilverusvið. Fjórðu víddarástandið má einfaldlega skilgreina sem sljóleika. Þetta er hálf-deyft ástand umbreytingar frá einni spennandi framsetningu til þeirrar næstu. Með skorti á ljómun koma líka þægilegri tímar til að reyna á kraftinn okkar í þægilegra umhverfi..
Frá sjónarhorni orkusviðsins
Okkur langar að deila með ykkur okkar sjónarhorni, því við sjáum ykkur sem hreinan orkuhjúp. Í okkar augum, eruð þið undurfögur samsetning af sveiflandi mynstri og litum. Það sem þið kallið áruna ykkar er raunverulega orkan sem geislar út frá líkama ykkar. Þegar losnar um orkuna, sjáið þið sveiflumynstrið sem liti og hvernig þeir víxlverkast í umhverfinu í kringum ykkur. Út frá þessu mynstri er hægt að sjá þær aðstæður sem virkjast innan allra hinna fjölmörgu sveiflusviða ykkar líkama. Þessar sveiflur túlka tilfinningarnar, líkamsþáttinn og alla ljósvakalíkamina sem hýsa ykka sönnu mannveru á meðan þið dveljið á leikvellinum. Þegar efni sveiflast, myndar það orkurás. Þess vegna , hafa orðin sveiflur og orka svipaða merkingu.
Ykkar orkumótun
Þið lifið í efnisforminu aðeins vegna þess að atómin sem móta það eru sveiflukennd. Hin stórkostlegu sveiflumynstur og geislandi litir sem við sjáum þegar við horfum á ykkur, er erfitt að skilgreina í orðum sem þið mynduð skilja. Ef þið gætuð ímyndað ykkur hina fegurstu og litríkustu sýn sem þið hafið augum litið og margfaldið hana 1000 sinnum, þá mynduð þið ekki ná þeirri fegurð sem við sjáum þegar við skoðum eitt hár í höfði ykkar. Eftir því sem ykkar skylningarvit þróast þá munuð þið sjá þá fegurð sem þið hafið að geyma. Á þeim tíma mun stríðsrekstur leggjast niður. Þessi orkumynstur ákvarðast fyrst af orkumótuninni sem þið kusuð fyrir þessa jarðvist. Á leikvellinum hafið þið fengið orkustimpla sem hafa breytt þessari upphaflegu orkumótun. Þessar breytingar eru bein afleiðing af ykkar vali og reynslu í leiknum. Það er stórkostlegt að skynja þessi mynstur því þau geyma allar skrár um ykkar reynslu sem skrifast um leið. Við munum afhjúpa meir um orkumótunina og staðsetningu hennar í komandi framtíð. Í augnablikinu, skoðið þetta sem frummyndun orku sem þið hafið tekið fyrir þennan áfanga leiksins. Í augnablikinu, sjáið frummyndun orkunnar ykkar, einfaldlega á þá leið, að hún sé raflögn til orkuleiðslu.
Ykkar persónulegi orkuhjúpur
Við vísum oft til fólks eða hluta á ykkar sviði. Hinn persónulegi orkuhjúpur ykkar er tengirásin ykkar við umheiminn í kringum ykkur. Lærið að nota þennan orkuhjúp og þið munið fljótlega ná tökum á umhverfinu. Hver persóna hann eða hún hefur orkuhjúp sem fér á undan í öllum gagnkvæmum áhrifum leikvallarins. Orkuhjúpurinn ykkar er inn í herbergi þar sem þið hafið mælt ykkur mót, áður en þið komið inn í bygginguna. Hann er í samskiptum við aðra í mílna fjarlægð áður en þið takið upp símann til hringja í þau. Þeir sem eru leiknir í að lesa þessa orkuhjúpa eru þeir sem þið kallið næma eða skyggna. Að lesa þessa orkuhjúpa mun vera undanfari á myndun samskipta sem munu gera símann úreltan. Orkuhjúpurinn ykkar hefur engar líkams-takmarkanir. Hann er, í grunneðli sínu, vitundarhjúpurinn ykkar og þekkir aðeins þau landamæri sem þið trúið að seu til staðar. Hraðinn er 186,000 mílur á sekúndu, það sem þið helduð áður að væri stöðugt, á ekki við um þessa orku. Þessi orka er tafarlaus. Fram til þessa í mannlegri þróun hefur ykkur aðeins tekist að skynja þennan orkuhjúp sjónrænt sem orkuútgeislun frá lífsforminu sem árumyndun. Mannleg skynjun ykkar skilgreinir veikleika og styrkleika árunnar og hvað litirnir túlka, við höfum haft mikla ánæhju af þessu. Vinsamlega skiljið að áran er aðeins lítill hluti af okkar persónulega orkuhjúp. Horfið útyfir áruna og lærið að treysta hinum mildu snertingum þegar aðrir fara inn í hjúpinn ykkar. Þetta er skynjunin sem mun færa ykkur inn á næsta stig mannlegrar þróunar.
Að breyta orkuhjúpnum ykkar ~ Sköpun 101
Þar sem grunnþátturinn okkar er orka, þá er orkuhjúpurinn ykkar grunnurinn af því sem þið eruð. Þess vegna gætu allir þættir sem breyta orkuhjúpnum ykkar orðið afar nauðsynlegir og fyrir ykkur að bera kennsl á þá, því þeir geta hjálpað við að skapa ykkar raunveruleika. Orka er tengirásinn ykkar við alheiminn í kringum ykkur og þess vegna er hún stefnan sem þið mótið. Allir þættir sem berast inn í hjúpinn ykkar skapa einhverjar breytingar hjá ykkur. Hjúpurinn ykkar breytist við hverja hugsun sem fer inn í höfuðið og með hverri persónu sem þið kynnist. Að sumu leiti breytir hver reynsla sem þið farið í gegnum, því hver þið eruð. Staðreyndin er, að í raun eruð þið samantekt af ykkar reynslu og vísið til hennar sem ykkar persónuleika. Við segjum ykkur líka að persónuleikinn ykkar, eða orkuhjúpurinn, er borinn af ykkur frá einni jarðvist til annarar. Í sambandi ykkar við þá sem hafa útskrifast, kemur það ykkur á óvart að uppgötva að jafnvel þótt þeir hafi yfirgefið lexíur sínar og stimpla á leikvellinum, að þeir beri enn kjarnann af persónuleika sínum? Að finna leiðir til að breyta orkuhjúpnum ykkar, er lykillinn að sköpunarkraftinum. Hér eru fjórar ábendingar, til að breyta orkuhjúpnum ykkar með ásetningi:
1. Dómgreind
2. Val á sveiflukenndum raunveruleika
3. Vísvitandi ytri áhrif
4. Að hafa ástríðu og fögnuð
1. Dómgreind er það fyrsta sem við þurfum að hafa, til að geta lifað í hærri orkusveiflum hinnar nýju plánetu jarðar. Dómgreind er sú list að móta lífsvalið án áfellisdóma. Um leið og hvert ykkar beinir sinni eigin orku, þá verðið þið meðvitaðri um hvernig þið myndið breytingar í orkuhjúpnum ykkar. Að velja með ásetningi það sem þið kyrrsetið í hjúpnum ykkar, er fyrsta leiðin til að breyta ykkar eigin orkuhjúp. Þið eruð í tengingum með Guðseiningunni og þar með í flæði alheimsorkunnar. T.d. Þið stjórnið því ekki, hvaða hugsanir fara inn í vitundarhjúpinn.Samt sem áður, hafið þið fulla stjórn á hvaða hugsanir þið staðsetjið í hjúpnum ykkar. Svipað og það eru margir sem þið kynnist á lífsbrautinni. En það er ykkar að velja hverjir verða til staðar í hjúpnum. Elskið ykkur fyrst og verið meðvituð um að enginn getur náð tökum á orkunni ykkar, án ykkar leyfis. Ykkar raunveruleiki er bein afleiðing af ykkar vali. Ef þið eruð ekki ánægð með ykkar raunveruleika, þá vinsamlega hafið hugrekkið til að velja aftur.
2. Lykillinn á breytingu í margvíddar raunveruleika, er listin að breyta skynjuninni. Ef það eru þættir í hjúpnum ykkar, sem hindra ykkur svo að þið eigið erfitt með hreyfingu, þá er besta leiðin að umbreyta skynjuninni til að stoppa orkulekann. Okkur þykir svo vænt um ykkur, að við erum með ykkur hvert augnablik sem þið leyfið okkur að vera. Ef við gætum aðeins sagt ykkur eitt á meðan við erum saman, þá væri það, að þið eruð í stórkostlegum leik. Þegar þið verðið fyrir orkuleka af hugsunum, þáttum eða fólki í hjúpnum ykkar, þá er það vegna þess að þið takið ykkur sjálf of alvarlega.
Til að skilja þetta betur, þá takið smá stund og sitjið ykkur inn í þessar aðstæður:
“Það er allt á þeytingi í kringum ykkur, með glampandi ljósum. Þið finnið undarlega hlýju yfirtaka líkamann ykkar og ró færist yfir ykkur. Það er nú að renna upp fyrir ykkur að þið hafið lent í bílslysi. Þið sjáið hendi teygja sig í átt til ykkar. Þegar þið teygjið ykkur til að taka í hendina, þá uppgötvið þið að þetta er ekki mannleg hendi. Þið sættið ykkur við þann raunveruleika að þið gætuð verið að skilja við. Á þessu augnabliki eruð þið færð upp á hæsta tind Jarðar, til að skoða mikilfengleikann sem liggur fyrir framan ykkur í allri sinni dýrð. Á þessu augnabliki öðlist þið skilning á fegurðinni sem felst í þessu öllu. Að vera með í leiknum í öllum hans glæsibrag er gjöf sem ykkur hefur hlotnast. Því á þessari stundu uppgötvið þið að jafnvel erfiðustu tímarnir áttu sína fegurð og þið myndið ekki vilja taka til baka augnablik af þeirri reynslu. Þið horfið yfir dalinn fyrir neðan og sjáið að leikur hins daglega lífs er í gangi, þið færið þakkir fyrir að hafa fengið tækifæri til að vera hluti af þessari stórfenglegu Jörð.”
Við höfum umbreytt ykkar rauveruleikaskyni. Þið getið auðveldlega séð að reynsla af þessum toga myndi breyta viðhorfum ykkar gagnvart öllu því sem hjúprinn ykkar hefur að geyma. Þau ykkar sem hafa numið leiftursýnir að heiman og snúið aftur til að taka þátt í leiknum, hafa önnur sjónarmið af lífinu, sem er afleiðing þeirra reynslu. Leikið ykkur hvern dag með sjónarhorn eftir eigin vali og orkuhjúprinn ykkar mun verða geislandi og hlaðinn. Ykkar er valið.
3. Að notfæra sér vísvitandi ytri áhrif er ein auðveldasta aðferðin til að breyta orkuhjúpnum með ásetningi. Að beita ytri áhrifum eins og tónlist, umhverfi og hljómum með ytri reynslu getið þið auðveldlega umbreytt hjúpnum ykkar. Söngur sem færir tár fram í augun, kvikmynd sem snertir sálarvitundina ykkar, mun koma á áhrifamiklu jáfnvægi á orkuhjúpinn ykkar.
4. Ástríða og fögnuður eru sveiflur að heiman. Árangur ykkar á hinni nýju plánetu Jörð, er í beinu hlutfalli við það magn af þeim fögnuði og ástríðum sem þið lifið daglega. Finnið leiðir til að upplifa fögnuð og ástríðu og hjúpurinn ykkar mun draga meira inn.
Páraðar línur ~ spjallið við alheiminn
Sköpunarkrafturinn ykkar er einfaldlega umgjörð af sveiflulínum sem þið sendið frá ykkur út í umheiminn. Þessar línur streyma út frá líkama ykkar og berast út í alheiminn. Alheimurinn sendir alltaf til baka nákvæmt hlutfall af því sem þið sendið frá ykkur. Þess vegna, er svarið við hverri beiðni sem send er út til alheims: “og svo skal vera .” Þar sem allri beiðni er svarað með nákvæmri sveiflujöfnun, þá er lykillinn að árangursríkri sköpun, að skýra sveiflurnar áður en þær eru sendar út.
Fjórar línusveiflur í Fjórðu víddinni
Innan orkuhjúpsins okkar eru fjórar sveiflulínur sem notaðar eru til sköpunar. Þessar línur eru alltaf sendar út saman sem pakki sem mótar orkuhjúpinn ykkar sem einingu.
Þessar línur mynda:
1. Hvað þið segið
2. Ykkar athafnir
3. Hvað þið hugsið
4. Ykkar trúarskoðanir
Ef ein eða fleiri af þessum sveiflulínum jafnast ekki á við hinar, eru sveiflurnar sem eru sendar út móðukenndar og óskýrar. Þegar ein sveiflulína krossar hinar, þá slá þær út og senda önnur skilaboð en ásetningur var fyrir í upphafi. árangurinn sem skilar ser frá óskýrum sveiflum er sjaldan sú sköpun sem ykkar ásetningur var að virkja. Þetta getur verið truflandi og orsakað vafa hjá ykkur sjálfum. Síðan veikir sjálfsefinn orkuhjúpinn ykkar ennþá meir.
Sveiflur heiðarleikans
Að færa ykkur inn á sfeiflur heiðarleikans er einföld leið til að samræma línusveiflurnar. Ef ykkar raunveruleiki og sköpunarvirkjun er ekki eftir ykkar óskum, þýðir það einfaldlega að línusveiflur orkuhjúpsins ykkar vinna hver gegn annari og slá hverja aðra út. Allar þessar línusveiflur eru hreyfanlegar, svo mögulegt er að samræma ykkar tíðni inn á línusveiflur heiðarleikans.
Orka er sannleikur ~ Fylgið orkunni
Mannkynið er nú að stíga að fullu inn á brú fjórðu víddarinnar. Straumur fjöldans á þessari brú mun halda áfram um nokkurn tíma. Þið eruð græðararnir sem hafið kosið að fara fyrst yfir og opna hliðin fyrir þá sem á eftir koma. Með hækkun víddarsviðanna ykkar, mun ykkar raunveruleiki og ykkar skynjun breytast. Orkuhjúpurinn ykkar og þeirra sem í kring um ykkur eru mun verða mikilvægari á komandi tímum. Þessir orkuhjúpar hafa alltaf verið ykkar persónulegu tengirásir og hvernig þið víxlverkið ykkur með umheiminum í kringum ykkur. Í lægri sveiflum ykkar þar sem þið hafið lifað, aðeins fyrstu tvær línurnar voru vel skynjanlegar. Þær voru:
1. Hvað þið segið og
2. Ykkar athafnir
Nú er mannkynið orðið mikið næmara fyrir orkuhjúpnum og allar þessar línur orkuhjúpsins vel skynjanlegar. Þið eruð að færast inn á vídd, þar sem þið hafið aðgang inn á orkuhjúp hvors annars. Þar, verða engin leyndarmál. Undirbúið ykkur fyrir þetta núna og umbreytingin verður auðveldari, ekki aðeins fyrir ykkur, heldur fyrir þá sem á eftir koma.
Næsta skref ~ Víddarstökkið
Dagarnir framundan munu veita ykkur næg tækifæri, til að nema og nota kraftinn ykkar. Við hvetjum ykkur til að nota þennan tíma til að æfa ykkur og undirbúa fyrir hærri sveiflur . Lærið að skapa ykkar raunveruleika nú. Verið ábyrg fyrir ykkur sjálfum, æfið ykkur og bjóðið þeim aðstoð sem eru í kring um ykkur. Þið eruð meistaragræðarar og hafið komið til að taka á ykkur hluverk hjálpendanna. Nú er tíminn til að nota þetta í ykkar daglega lífi. Brú fjórðu víddarinnar er nú opin og er undirbúin fyrir umferð. Þið eruð græðararnir sem hafið beðið í þolinmæði eftir að þessir eftirvæntingarfullu tímar myndu koma. Þið eruð þau fyrstu á brúnni. Vinsamlega munið að ykkar sanna verkefni er að leiðbeina þeim sem eru leitandi, að komast yfir brúna án fyrirhafnar. Verið vel undirbúin með verkefnin ykkar, því um leið og sá fyrsti fer yfir brúna mun ykkur vera þörf. Umbreytinguna inn á hærri víddarsvið er aðeins mögulegt að ávinna sér í gegnum kostina ykkar. Kjósið æðstu og bestu tjáninguna fyrir ástríður ykkar og ykkur mun vegnast vel. Þetta er afar sérstakur tími á plánetu Jörð. Tími fagnaðar, tími ástríðu og tími ástar. Notið kraftinn ykkar hvenær sem færi gefst og skapið heimkynni í ykkar tilveru. Verið meðvituð um að við séum allaf með ykkur og snertum hjarta ykkar með sérstakri snertingu. Væntið þess að dyrnar opnist fyrirhafnarlaust og það mun skapa ykkur rýmið til að opna þær. Þorið að skapa ykkar æðsta raunveruleika og gangið í honum með höfðinglegri reisn. Arfleifð ykkar er svo sannarlega stórkostleg. Ykkur hefur hlotnast rétturinn, sem gæslumenn ljóssins. Ljósið sem þið berið núna upplýsir brúna sem liggur inn í næsta raunveruleika. Haldið ljósinu ykkar hátt og verið meðvituð um að við erum alltaf með ykkur í æðsta kærleika. Það er með dýpstu virðingu fyrir ykkur, að við biðjum ykkur að hlúa hvert að öðru, með virðingu og leikið ykkur vel saman. . .
the Group
á fundum hefur the Group oft sýnt fram á að þetta sé leiðin til að takast á við erfiðu tímanna, sem ákvarðar framrás okkar þegar pendúllinn fer að sveiflast í hina áttina. Búið ykkur undir að ná valdi á kraftinum ykkar, því er lofað að tímarnir framundan séu afar spennandi.
~The Beacons of Light Hugleiðslan~
Lokið augunum og hvílist um stund. Leggið allar áhyggjur dagsins í kassa út við dyrnar. Andið djúpt og slakið á. Við hverja innöndun finnið lífskraftinn koma inn um topp höfuðsins og streyma um líkamann. Við hverja útöndun finnið þið spennuna streyma frá líkamanum. Notið öndunina til að mynda þennslu í lifskraftinum. Nú skuluð þið nema orkusvið leiðbeinenda ykkar á bak við ykkur. Nú er stundin til að tengjast þeim sem ætla að ferðast með ykkur. Við erum að fara í ferð. . .
Þið finnið ykkur sitjandi í sérstökum stól í ykkar sérstaka herbergi. Þið hafið oft komið á þennan stað og þið eruð meðvituð um að þið eruð komin inn í ykkar einkaherbergi í Kastala ljóssins. Þið brosið, því þessi staður er einstakur fyrir ykkur. Þetta er staðurinn sem þið dvölduð á, milli jarðvista. Heðan eigið þið fjölmargar, stórkostlegar minningar. Þið horfið í kringum ykkur og byrjið að rifja upp… á þessari stundu er bankað á dyrnar. Án umhugsunar þá verðið þið vör við að Merlia stendur hinum megin við dyrnar og gefur ykkur bendingu um að koma með sér. Hún opnar dyrnar og horfir beint í augu ykkar og brosir breitt. Án orða vitið þið að stundin er komin. Þið umfaðmið Merlia og horfið svo um herbergið til að skoða það betur. Þið hafið á tilfinningunni að þið komið ekki hingað aftur í nánustu framtíð. Þið farið fram í ganginn til að fylgja Merlia sem leiðir ykkur í gegnum sali Kastalans með ásetningi.
Nú komið þið að dyrunum að aðalsalnum og farið inn. Í aðalsalnum eru komin saman, öll ykkar andlega fjölskylda frá upphafi. Þið skoðið herbergið og eigið erfitt með að nema allann þennan fjölda. Aðalsalurinn er fullur í fyrsta skipti síðan leikurinn hófst. Merlia snýr sér að ykkur og svarar spurningum ykkar áður en þið spyrjið. “Aðalsalur kastalans var hannaður og byggður til að þjóna tvennskonar tilgangi. Annar var í byrjun þegar leikurinn hófst. Aðalsalurinn hefur verið notaður fyrir margar uppákomur, en aldrei, síðan frá upphafi hefur öll fjöskyldan verið saman komin fyrr. Þetta er sérstök stund.” Þá spyrjið þið: ” Hver var hinn tilgangurinn sem salurinn var hannaður fyrir?” Merlia snýr sér að ykkur og brosir. Kærleiksrík hlýja streymir í gegnum ykkur, þegar hún svarar: “Þetta er hitt tilefnið, annað bylgusvið mannkyns. Við þóttumst vita, að þið mynduð ekki þessa stund, en hér eruð þið að ganga inn á næsta stig leiksins. Ég er svo hreykinn af þeirri vinnu sem þið hafið framkvæmt og nú eruð þið að stíga inn á æðra verksvið.”
Af því loknu færir Merlia ykkur inn í hópinn og byður ykkur um að taka ykkur stöðu inn í ‘ Röðum minninganna.’ Hér sjáið þið tvær stólraðir, þar sem hver stóll snýr gegn hver öðrum.Þið finnið sæti sem þið vitið að er ykkar og sitjist. Þögn færist yfir salinn og Merlia byrjar að ávarpa hópinn: “Tíminn er kominn. Þið eruð að fara inn í verkefni í dag sem þjónar öllu ssem er. Þetta er stærsta vonin sem þið gætuð hafa valið fyrir ykkar tilvist í leiknum. Með aðstoð leiðbeinenda ykkar, ætlum við nú að undirbúa ykkur, fyrir það sem þið komuð hingað til að gera.”
Þið nemið nærveru leiðbeinenda ykkar og eruð meðvituð um þá rétt fyrir aftan ykkur. Nú byrjar Merlia að tala aftur: “Ég ætla að leiða ykkur í gegnum æfingu sem hjálpar ykkur að muna, hvernig þið breytið orkuhjúpnum ykkar. Nemið orkuhjúpinn ykkar um stund og ímyndið ykkur hann sem stóra kúlu sem umvefur ykkur. Þið hafið stjórn á þessum orkuhjúp, þótt þið hafið ekki vanist því. Myndið þennslu í kúlunni, þannig að hjúpurinn fylli út í allt herbergið. Þegar þið gerið það, þá nemið þið alla sem eru með ykkur í herberginu. Tengið inn á orkuhjúpinn þeirra um leið og þið nemið þau hvert fyrir sig. Gefið ykkur nú stutta stund og dragið orkuhjúpinn ykkar saman. Þrýstið honum út aftur, þannig að hann umlykur aðeins efnislíkamann. Takið eftir breytingunum núna og hvernig þið nemið aðra í kring um ykkur. Opnið nú augun og beinið orkuhjúpnum ykkar inn á næstu persónu. Hjúpið hana með orkunni ykkar og leifið öðrum að hjúpa ykkur. Umbreytið orkuhjúpnum ykkar nú, í fagurgrænan lit. Sjáið hvernig fólk bregst við ykkur núna, eftir að þið hafið breytt orkusveiflum hjúpsins ykkar. Færið nú hjúpinn ykkar aftur, rólega í eðlilegt ástand. Nú skuluð þið velja ykkur lit sem þið teljið orkuaukandi fyrir ykkur. Breytið orkuhjúpnum ykkar í þennan lit og fylgist með hvaða áhrif hann hefur á fólkið í umhverfinu. Nú skuluð þið umbreyta hjúpnum ykkar í þann lit sem túlkar kærleikann. Getið þið numið hvernig þeir sem eru innan hjúpsins ykkar mildast og byrja að dragast inn í sveiflurnan ykkar? Nú að síðustu takið inn lit sem túlkar uppljómun. Haldið þessum lit og þenjið hjúpinn ykkar um allt herbergið.
Eftir stutta stund byrjið þið að heyra óm og hljómur byrjar að streyma um allt herbergið. Meðtakið orkusveiflurnar í þessum tónum og leifið þeim að endurnýja ykkar sanna kraft. Takið djúpa innöndun og haldið henni á meðan krafturinn streymir í gegnum ykkur. Þið sjáið nú að það geislar af ykkur, eins og öllum sem eru í herberginu. Einn hlutinn af þeim sem eru í herberginu byrja að búa sig til brottfarar. Þið fylgið eftir þegar kemur að ykkur, jafnvel þótt þið skiljið ekki að fullu hvað er um að vera. Fljótlega byrjar hópurinn að yfirgefa kastalann í gegnum útgang sem þið hafið ekki tekið eftir áður. Merlia stendur við útganginn og sýnir öllum þakklætisvott sem fara út. Sumir sýna gleðitár, þegar þeir komst í kærleiksríka snertingu við hana. Eftir stutta stund komist þið að útgöngudyrunum. Merlia horfir brosandi til ykkar og talar til ykkar beint. Gefið ykkur stutta stund og hlustið á hana. – – – – – – – – –
Eftir kveðjur frá Merlia, þá komið þið inn í bakgarðinn og sjáið langa brú sem liggur út í sjóndeildarhringinn. Hún er það löng að þið sjáið ekki fyrir endann á henni og svo breið að hún gæti rúmað alla í salnum, þótt þeir röðuðu sér upp í eina röðun. Rödd Merlia bergmálar í höfðinu ykkar: ” Þessi brú er fjórða víddin. Fljótlega munu margir fylgja á eftir, þegar þeir eru tilbúnir. Þetta er verkefnið sem ykkur hefur verið falið. Hér og nú eruð þið það ljós sem þið eruð í raun. Þið munuð lýsa brautina með því ljósi sem þið gangið í. Stundin er komin.”
Í svipsýn getið þið nú séð alla standa í röðum sitt hvoru megin á brúnni og þenja orkuhjúpinn til að lýsa upp brúna fyrir aðra. Stórkostleg regnbogamyndun af sameiginlegum orkuhjúp myndar áhrifamikla sjón. Þið sjáið nú að ljósið sem þið hafið að geima er notað. Þegar þeir fyrstu byrja að ganga yfir brúna þá finnið þið, að þið hafið fulla stjórn á orkuhjúpnum. Þegar fólkið gengur framhjá ykkur, þá notið þið smástund til að þenja hjúpinn ykkar í átt til þeirra og fyllið hann þeim lit sem gefur þeim þægilegheit og hjálpar þeim á ferð þeirra. Ykkur er svo mikill heiður í að vera svo virk í að virkja ljósið. Þetta er það sem þið komuð til að gera. Hér eruð þið að virkja framkvæmdir. Í þessu heyrið þið rödd Merlia bergmála í höfðinu ykkar einu sinni enn: ” Þið eruð ljósið að heiman, berið það með hreykni og látið það skína skært. Þetta er það sem þið komuð til að gera.”
Og lát svo vera. . .
Tilkynning um höfundarrétt
Höfundarréttur 2001 Steve Rother. Þessum upplýsingum má dreyfa sem heild eða að hluta, það er ekkert gjald fyrir þessar upplýsingar, en við óskum eftir að þetta viðhengi fái að fylgja. Þegar notaðar eru greinar úr þessu efni, eða að hluta, þá látið koma fram að þetta sé hluti af heildargrein og vísið lesandanum á heildargreinina með þessari netslóð http://www.espavo.org/beacons/ Frekari upplýsingar frá Steve Rother and the Group má fynna á vefsíðunni : http://www.espavo.org/ eða hjá Lightworker í síma (858) 748 5837.